Weatherdock Easy2 MOB
Mjög nettur og handhægur AIS/ DSC neyðarsendir sem hægt er að setja í björgunarvesti eða í vasa á flotgalla.
Sendirinn fer sjálfkrafa í gang ef hann lendir í vatni, og sendir neyðarboð í nærliggjandi AIS tæki og VHF talstöðvar sem eru með DSC móttakara sem eru nær allar nýrri talstöðvar á markanum í dag.
Hægt er að forrita í sendinn allt að 8 MMSI númer skipa sem hafa forgang í DSC móttöku frá sendinum.
- Hægt að setja í flestar gerðir björgunarvesta
- Sendir AIS neyðarboð í öll AIS tæki í nágrenninu, með rauntíma uppfærslu á staðsetningu manns í sjó
- Sendir DSC neyðarboð til allra VFH/DSC talstöðva í nágrenninu
- Að lágmarki 12 tíma rafhlöðuending
- Mjög skært rautt neyðarljós
- 1 Watt sending AIS merkis
- 0,5 Watt sending DSC merkis
- Fullkomlega sjálfvirk virkjun við að lenda í vatni
- Flýtur á vatni, þarf ekki flotpoka
- Engin notkunargjöld
- Uppfyllir allar reglugerðir