Wesmar hefur framleitt sónartæki í yfir 30 ár. Sónartækin frá þeim hafa reynst sérstaklega vel í snurvoðarbátum hér við land og skilað notendum miklum ávinningi. Nýlega setti Wesmar á markað nýja gerð slíks tækis sem er mjög fyrirferðarlítið og á mjög hagstæðu verði sem gerir fleirum en áður kleift að nýta sér þá möguleika sem sónartæki bjóða upp á umfram hefðbundna dýptarmæla.
Wesmar framleiðir einnig höfuðlínusónartæki, og hefur náð umtalsverðri markaðshlutdeild á þeim 12 árum sem þeir hafa verið með í þeirri samkeppni. Stór hluti íslenska fjölveiðiskipaflotans er búinn þessum höfuðlínusónar og hefur hann reynst vel og komið með fjölda nýjunga inn í þessa tegund tækja.
Sýnir allar 4 leitarniðurstöður
-
Wesmar HD825 sónartæki
Wesmar HD825 sónartæki
Sónar sem hentar til notkunar við flestar fiskveiðar. Sérstaklega hentugur við Makrílveiðar á litlum og meðalstórum bátum. -
Wesmar TCS385 höfuðlínusendir 180 kHz
-
Wesmar TCS785 höfuðlínusendir 180 kHz
Wesmar TCS785 höfuðlínusendir 180 kHz
Höfuðlínustykki með 180 khz sneiðmynd og 110 khz fram og niðurgeisla. -
Wesmar TCS785/385 Höfuðlínusónarkerfi