EM-TRAK B951, 5W Class B AIS Tæki
EM-trak B951 er Class B AIS tæki sem er með meira sendiafl og notar SOTDMA aðferðina til að stjórna sendingum.
Þetta gerir það að verkum að það er langdrægara en eldri Class B AIS tæki og minnkar stórlega líkurnar á að sendingar frá því detti út úr vaktkerfi Vaktstöðvar siglinga.
B951 sendir út meira en tvöfalt sterkara merki en standard Class B tæki, auk þess að senda allt að 5 sinnum örar, á SOTDMA sem er sama sendingafyrirkomulag og á Class A tækjum.
Tækið er fyrirferðarlítið og vatnsþétt og hentar því vel við allar aðstæður.
Helstu eiginleikar:
- 5W sendiafl
- SOTDMA sendingar
- Innbyggt GPS loftnet, hægt að tengja útiloftnet
- Vatnsþétt, IP 67
- NMEA 0183 og NMEA 2000
Enskan bækling með nánari tæknilegum upplýsingum um Em-Trak B951 má finna hér: Em-trak Datasheet_B951
Notkunarhandbókina má finna hér: B900-Series-manual-EN-v2