JRC JAN-9201 ECDIS
Rafræni kortaskjárinn frá JRC er fullkomlega viðurkennt tæki af IMO til notkunar fyrir rafræn sjókort án pappírskorta.
Hann styður alla nýjustu viðurkennda rafræna kortastaðla, tengist bæði ratsjá og AIS tækjum og gefur þannig heildaryfirlit yfir siglinga aðstæður hverju sinni.
Mjög auðvelt er að búa til siglingaleiðir, og hægt að öryggisprófa leiðir með einum smelli áður en þær eru notaðar. Ef villur í leiðinni finnast þá eru þær merktar á áberandi hátt þannig að auðvelt er að koma auga á þær og lagfæra áður en sigling hefst.
Notendaviðmótið er nýtt og þægilegt og allar aðgerðir eru gerðar með kúlumús (rottu) sem er einnig búin flýtihnöppum til að stytta leið að helstu aðgerðum. Einnig er hægt að fá lyklaborð með fleiri flýtihnöppum ef óskað er.
Skjáirnir eru 18 eða 26 tommu með bjartri LED baklýsingu sem tryggir sýnileika við allar aðstæður.
Uppfyllir IMO staðla |
✔ |
Vélbúnaður | |
Skjár |
JAN-7201S: 19-tommu SXGA lita LCD, 1280 × 1024 punktar |
Tölvueining |
Intel Core i5 2515E 2.5GHz, 2GB minni, SSD × 2, DVD drif × 1 |
Vinnuspenna | 24V DC og einfasa 100 til 115V AC eða 220 til 240 V AC á 50/60 Hz |
Orkuþörf | JAN-7201S: Uþb. 200 VA., JAN-9201S: Uþb. 240 VA. |
Kortaskjár | |
Kortagrunnar | ENC: S-57 Ed3.0/3.1 and S-63 AVCS (AIO stuðningur), NAVTOR ENC Service, Jeppesen ENC Service Skönnuð kort: ARCS Önnur kort: Jeppesen Ed.3 Professional / Professional+ |
Vinnsluhamur | TM (raunhreyfing)/RM (afstæð hreyfing) framsetning |
Stefnuframsetning | True motion mode: Norður UPP/Stefna UPP/Stefni UPP/Leiðarpunktur UPP Relative motion mode: Norður UPP/Stefna UPP/Stefni UPP/Leiðarpunktur UPP |
Skalar | 0.125, 0.25, 0.5, 0.75, 1.5, 3, 6, 12, 24, 48, 96NM |
Skjáskipting | Efri-Neðri skipting / Vinstri-hægri skipting/ Mynd í mynd |
Leiðaskipulagning | |
Leiðabygging | Í töflu/ vinnsla á korti |
Leiðabreyting | Bæta við punkti / eyðing punkta /breyting punkta/ Búa til varaleið,afrita leið, tenging milli leiða, Influtningur-útflutningur á CSV sniði) |
Öryggisprófun | Já |
Sýnilegar leiðir | Hámark 4 |
Siglingavakt | |
Eigið skip | Staðsetning, ferill, og akkerisvakt |
Leiðavakt | Dýpi, hindranir, bannsvæði, stefnufrávik, leiðarpunktar og stefnufrávik. |
Vakt, önnur skip | AIS : 500 skip hámark |
Notendagögn | |
Number of display points | 100,000 punktar (merki og línur) |
Import/Export | Hægt með USB minni |
Aðrar aðgerðir | |
Gagnaframsetning | Gagnagluggar fyrir tölulegar upplýsingar |
Kerfisprófun | Standard |
Fjarviðhald | Standard |
Endurspilun | Siglingagögn (3 mánuðir að hámarki) Loggbók (3 mánuðir að hámarki) |