Kaijo Sonic SCS-22 Sonar
Kaijo Sonic SCS-22 er nýjasta gerð lágtíðnisónartækja frá KAIJO.
SCS-22 er með tölvustjórneiningu sem hefur stafræna merkjavinnslu og mikinn hraða í gagnavinnslu.
Þetta skilar meiri næmni á fisk, minni truflunum, betri aðgreiningarhæfni og auknu langdrægi.
Senditíðnin er mjög lág, 21 kHz sem skilar mjög miklu langdrægi.
Hífibúnaðurinn og sónarkúlan á KAIJO Sonic SCS-22 eru gríðarlega sterkbyggð sem þýðir að líkur á kostnaðarsömum viðgerðum eru verulega minni og rekstrarkostnaður lægri.
- Mög þröngir geislar, aðeins 7 ° gefur mjög góða mynd og óvenju litlir hliðargeislar tryggja einnig að sónarinn heldur eiginleikum sínum vel á grunnu vatni og skilar góðri aðgreiningu á litlum lóðningum.
- 20 sinnum hraðvirkari veltuleiðrétting og háþróuð truflanadeyfing fjarlægir truflanir og skilar hreinum og skörpum lóðningum.
- Einkaleyfisvernduð senditækni, RDT skilar lengri og kröftugri sendipúlsi og skilar 20% meira langdrægi.
- Stillanleg tíðni
- 2 sjálfstæðar sónarmyndir, með mismunandi stillingum á skala, næmni, truflanadeyfingum og fleiri þáttum.
- 2 sjálfstæðar lóðréttar sneiðmyndir
- Ferlun á allt að 3 fisktorfum samtímis, (hraði og stefna)
- Hægt er að vista allt að 10 mismunandi notendastillingar fyrir mismunandi aðstæður og fisktegundir.
- Ný og þróuð truflandeyfingartækni minnkar truflanir frá eigin skipi og öðrum skipum sem skilar hreinni mynd og betri aðgreiningu á fiski.
- Hægt að tengja þráðlausa rottu til þægindaauka við stjórnun sónars.
- Mjög öflug sónarkúla með 768 augum, í húsi úr ryðfríu stáli sem tryggir lágmarks líkur á tjóni á kúlunni.
- Mjög sterkbyggður hífibúnaður með stuðningshring á röri sem styður við kúluna alla leið niður brunninn. Þetta minnkar viðhaldskostnað og eykur líftíma hífibúnaðar og kúlu.
- Eins og í öllum Kaijo tækjum er stjórntölvan í stál boxi og engir hreyfanlegir hlutir nema kælivifta í iðnaðargæðum
- Einfalt að taka upp og skoða sónarmyndir.
Sjá bækling um Kaijo Sonic SCS-22 Sonar- hér