Kaijo Sonic SCS-88 Sonar
Kaijo Sonic SCS-88 er nýjasta gerð lágtíðnisónartækja frá KAIJO.
SCS-88 er með tölvustjórneiningu sem hefur stafræna merkjavinnslu og mikinn hraða í gagnavinnslu.
Þetta skilar meiri næmni á fisk, minni truflunum, betri aðgreiningarhæfni og auknu langdrægi.
Senditíðnin er 94 kHz sem hentar vel við veiðar á öllum tegundum fisks
Sama sterkbyggða hönnunin og á eldri gerðum, tryggir ending og tryggir lágmarks bilanir.
- Ný og þróuð truflandeyfingartækni minnkar truflanir frá eigin skipi og öðrum skipum sem skilar hreinni mynd og betri aðgreiningu á fiski.
- 20 sinnum hraðvirkari veltuleiðrétting og háþróuð truflanadeyfing fjarlægir truflanir og skilar hreinum og skörpum lóðningum.
- Mjög öflugur sónar, 960 augu í kúlu og 960 rásir í móttakara
- Gríðarlega þröngur geisli sem gefur afburða virkni á grunnu vatni.
- Tapar ekki torfum nærri skipi.
- Áætlar stærð fisktorfa
- 2 sjálfstæðar lóðréttar sneiðmyndir
- 2 sjálfstæðar sónarmyndir, með mismunandi stillingum á skala, næmni, truflanadeyfingum og fleiri þáttum.
- Ferlun á allt að 3 fisktorfum samtímis, (hraði og stefna)
- Hægt er að vista allt að 10 mismunandi notendastillingar fyrir mismunandi aðstæður og fisktegundir.
- Einfalt að taka upp og skoða sónarmyndir.
- Mjög sterkbyggður hífibúnaður með stuðningshring á röri sem styður við kúluna alla leið niður brunninn. Þetta minnkar viðhaldskostnað og eykur líftíma hífibúnaðar og kúlu.
- Eins og í öllum Kaijo tækjum er stjórntölvan í stál boxi og engir hreyfanlegir hlutir nema kælivifta í iðnaðargæðum
- Hægt að tengja þráðlausa rottu til þægindaauka við stjórnun sónars.
Sjá bækling um Sonic Kaijo Denki SCS-88 Sonar – hér