Koden CVS-1410B Breiðbands dýptarmælir
Öflugur 2 tíðna 2 Kw. dýptarmælir með 10,4″ litaskjá fyrir litla báta.
Mjög öflugur breiðbandsmælir fyrir minni báta. Breiðbandstæknin tryggir að hægt er að velja þá tíðni sem best hentar þeim veiðum sem verið er að stunda. Einnig er hægt að hliðra til tíðni til að forðast truflanir frá öðrum dýptarmælum á sömu tíðni.
Helstu eiginleikar:
- Stafræn myndvinnsla,10,4″ litaskjár 640×480 punkta upplausn
- Tveggja tíðna 24 – 210 kHz
- Sendiafl 2 kílówött
- Hægt að velja um 64 liti á lóðningum
- Forritanlegir skalar
- Hægt að sýna tvær tíðnir samtímis á skjá
- Einföld ‘Plotter’ virkni
- Fisk, botn, hraða, komu, hita, og XTE aðvaranir
- Hægt að vista allt að 10 skjámyndir í minni
- Útgangur fyrir aukaskjá
- Vinnu spenna frá 10.8 V til 31.2 V DC
Eiginleikar
Helstu eiginleikar | Stækkun, Auto, Fisksjá, Fjöldi lita: 64, 16, 8 litir, Vista mynd, Veiðistaðir |
Skalar | 2.5 til 2000 Metrar/ Faðmar 10 til 6000 Fet |
Sendiafl (RMS) | 2 Kw. |
Tíðni | Tvær á bilinu 24 – 210 kHz, í 0,1 kHz þrepum |
Vatnsþéttni | IPX5 |
Mál | 320(H) x 364(W) x 184(D) mm |
Þyngd | 7,5 kg |
Vinnuspenna | 10.8 to 31.2 VDC |