Seapix 3D fjölgeisladýptarmælir

Seapix fjölgeisla dýptarmælirinn er eitt þróaðast og fullkomnasta fiskileitartæki heims í dag.

Seapix  mælirinn hentar til allra fiskveiða en er sérstaklega hentugur til tog og nótaveiða stærri skipa.

Hann hefur veltuleiðrétt botnstykki sem sýnir 120° geira, bæði langsum eftir stefnu skipsins og þvert á hana. Þetta gerir honum kleift að sýna allt svæðið undir skipinu, bæði lögun botnsins og gerð hans, auk þess að sýna nákvæmlega fisklóðningar með stærð og tegundagreiningu.

Seapix eykur afkastagetu skipa við veiðar og gerið þeim kleift að sækja meir afla með minni tilkostnaði. Öflug tegundagreining  mælisins auðveldar ákvarðanatöku við veiðar og lágmarkar meðafla óæskilegra tegunda

 

 

 

Sendiafl 8 KW
Tíðni 150 Khz
Rúmtaksupplausn 0,6 rúmmetrar
Botnskoðunarsvæði 120°x120°, jafngildi 650 metra á 200 metra dýpi
Svæði fyrir uppsjávarfisk 120°x120°, jafngildi 650 metra á 200 metra dýpi
Svæði fyrir botnlægan fisk 30°x30°, jafngildi 100 metra á 200 metra dýpi
Langdrægi
Uppsjávarfiskur Allt að 450 metrum
Botnskráning Allt að 600 metrum
Dýptarmælismynd Allt að 750 metrum
Botnlægur fiskur 250 – 330 metrar, eftir tegundum

Myndbönd úr skipum með Seapix fjölgeisla dýptarmælinn

Seapix, botntroll um borð í Bergvolls 2020-12-08

Flokkur: Merkimiði: