Tranberg 2650 Halogen leitarljós, rafstýrt
Tranberg TEF 2650 halogen leitarljósin eru sterkbyggð ljós, hönnuð og smíðuð í Noregi fyrir krefjandi aðstæður norður Atlantshafsins.
Hús og burðarvirki ljósanna er úr ryðfríu stáli sem þolir vel seltu og veðurálag á norðurslóðum.
Ljósunum er fjarstýrt með þægilegu stjórnborði í brú skipsins.
TEF 2650 leitarljósin eru til í 250, 1000 og 2000 watta útgáfu.